Stefán B. Sigurðsson, lífeðlisfræðingur: Fjallað um hvaða áhrif hiti hefur á mannslíkamann- og hugann. Spáð er mikilli sól og hita þegar íslenska karlalandsliðið mætir Nígeríu á HM og jafnvel talið að hitinn eigi eftir að hafa áhrif á getu og frammistöðu leikmanna. Guðmundur Frey Magnús, hjá Skopis þýðingarstofu: Fjallað um notkun vélþýðinga og þýðingaforrita og stöðu íslenskunnar í stækkandi heimi raddskipana, þar sem notendur tala er við tækin sín. Friðrik Páll Jónsson: Erlendur pistill: Notkun sterkra verkjalyfja í BNA og áhrif þess á lífslíkur og meðalævilengd.
↧
Áhrif hita á líkama og huga, vélþýðingar og sterk verkjalyf.
↧
Áfallastreita og sjálfsofnæmi, áhrif aðskilnaðs við foreldra á börn og
Hrefna Ólafsdóttir lektor HÍ: Í Bandaríkjunum, og víðar, eru börn á flótta aðskilin foreldrum sínum. Hvaða áhrif hefur slíkt á börnin? Unnur Anna Valdimarsdóttir prófessor HÍ: Unnur var önnur þeirra er stýrði rannsókn sem leiddi í ljós að fólk sem greinst hefur með áfallastreituröskun, er í aukinni áhættu með að greinast síðar með sjálfsónæmissjúkdóma. Rannsóknin byggði á heilsufarsupplýsingum frá 100 þúsund manns og spannaði 30 ár. Ingvar Haraldsson Jarðhitaskóla SÞ og Vera Knútsdóttir: Heimsmarkmið SÞ nr. 7
↧
↧
Sumarlestur, endurnýtt við framkvæmdir og umhverfismál.
Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir læsisráðgjafi Menntamálastofnun og Margrét Sigurgeirsdóttir forst.maður Bókasafns Garðabæjar: Sumarlestur, er verkefni á vegum MMS og bókasafnanna til að hvetja börn til að lesa yfir sumarið því sýnt hefur verið fram á að lestrarfærni hrakar mjög hjá yngri hóum ef ekkert er lesið. Guðmndur Tryggvi Ólafsson Sorpu: Um endurnýtingu gamalla hluta og byggingarefna og nytjamarkað fyrir það. Stefán Gíslason: Umhverfispistill
↧
Þjóðerniskennd og fótbolti, skógardagurinn og górillan Kókó
Kristján Þór Sigurðsson mannfræðingur: Þjóðerniskennd, þjóðernisklisjur og fótbolti Jón Ásgeir Jónsson skógfræðingur: Líf í lundi , skógardagur er nú haldinn í fyrsta sinn. Vera Illugadóttir: Górillan Kókó er öll, 46 ára að aldri. Vera segir frá henni.
↧
Lífrænar mjólkurafurðir, þriðja æviskeiðið og baráttan gegn mænusótt.
Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobús: Biobú er fimmtán ára um þessar mundir, rætt var við Helga um lífrænar mjólkurvörur, framleiðslu, gengi og framtíð. Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir í stjórn U3A: Þriðja æviskeiðið, sköpun tækifæra og nýting, ráðstefna með niðurstöðum "Gríptu boltann" verkefnisins. Edda Olgudóttir: mænusótt; hvernig verður henni útrýmt?
↧
↧
Öryggismál, ungir þolendur ofbeldis, málfar og gæludýr.
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði við HÍ: sýn íslensks almennings á utanríkis- og öryggismál. Hvað telur fólk að ógni öryggi og stuðli að örygg? HAfdís Helgudóttir félagsráðgjafi hjá Bjarkarhlíð: Forsvarsmenn Bjarkarhlíðar sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis hafa áhyggjur af vaxandi fjölda fólks á aldrinum 18-29 ára sem leitar aðstoðar hjá miðstöðinni en um sjötíu prósent skjólstæðinganna sem þangað leita eru á þessum aldri. Það er hins vegar fagnaðarefni að sífellt fleiri leiti sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum. Rýnt var ðí hvað unga kynslóðin er að upplifa og mögulega skýringar á því. Málfarsmínúta Kolbrún Arna Sigurðardóttir, faggæludýrahjúkrunarfræðingur: Gæludýr og sumarfrí
↧
Ofbeldismál og kerfið, ofreynsla, málfar og heimsmarkmið
Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður: Rakið mál konu sem flúði heimilisofbeldi sem hún og börn hennar urðu fyrir og áralanga baráttu hennar í kjölfarið til að ná eigum sínum til baka frá ofbeldismanninum, fá forræði yfir börnunum og koma ofbeldiskærunni í gegnum dómsstóla. Þórarinn Sveinsson, prófessor í lífeðlisfræði við sjúkraþjálfunardeild HÍ: hvernig lýsir ofreynsla og ofkæling sér? Málfarsmínúta Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UNWomen á Íslandi og Irma Erlingsdóttir, forstöðukona jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna: heimsmarkmið SÞ, markmið fimm; jafnrétti kynjanna.
↧
Beinþynning, vegavinna og umhverfisvæn sumarleyfi
Kári Stefánsson, íslenskri Erfðagreiningu: rannsóknir á beinþynningu. Jóhann Pétursson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni: vegavinna á sumrin, gangur, áhrif veðurs og umferðar Stefán Gíslason: Umhverfisvæn sumarleyfi
↧
Lífeyrisgreiðslur eldri borgara, sveitafjölbýli, málfar og skræklóan á
Erna Indriðadóttir, varaformaður félags eldri borgara: endurgreiðsluskylda ellilífeyrisþega til Tryggingastofnunar og hvernig eignarstaða þeirra getur haft áhrif á lífeyrisgreiðslur þeirra. Jóhann Sigurðsson, framkvæ.stj arkitektafyrirtækisisn Tendra: Sveitafjölbýli, hvað er það og fyrir hverja? Málfar Vera Illugadóttir: varp skræklóu kemur undirbúningi risastórrar tónlistarhátíðar í uppnám.
↧
↧
Gróður, fallhlífastökk og round up.
Hvernig er ástand gróður- og jarðvegsauðlinda landsins? Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar og beitarálag ? GróLind er verkefni þar sem beitt verður margvíslegum aðferðum í að meta og vakta ástand gróðursins og bæta beitarstjórnun. Í Samfélaginu verður rætt við Bryndísi Marteinsdóttur verkefnisstjóra GróLindar. Þá verður fjallað um fallhlífastökk en fyrir helgi var líklega Íslandsmet slegið þegar 95 ára Páll Bergþórsson fór í fallhlífastökk. Rætt verður við tvo fallahlífastökkvara um þetta sérkennilega sport. Og í vísindaspjalli fjallar Edda Olgudóttir um Round-up sem notað er til að eyða illgresi og skordýrum
↧
Málþroski og læsi - Hákarlar - Loftkæling
Hrafnhildur Ragnarsdóttir professor emeritus HÍ: Hrafnhildur hefur um árabil rannsakað mikilvægi málþroskans á leikskólaárunum. Hann er undirstaða lestrarnáms á fyrstu skólaárunum og getur sagt fyrir um árangur síðar meir. Hún ræðir rannsóknir sínar og annarra og hvernig hægt er að efla lesskilning skólabarna. Klara Björg Jakobsdóttir sjávarlíffræðingur Hafrannsóknarstofnun : Hákarlar fá oft slæma útreið á hvíta tjaldinu, nú síðast í myndinni The Meg, sem frumsýnd var á dögunum og skartar íslenskum leikara í einu hlutverka. En hvað hefru sjávarlíffræðingurinn að segja um háfa og hákarla? Friðrik Páll: Í hitabylgjum víða um lönd í sumar hefur loftkæling á heimilum og á vinnustöðum auðveldað fólki að þrauka og sumum hreinlega að lifa af. Loftkælingartæki eru því mikið þarfaþing, en þau nota mikið rafmagn, og valda aukinni losun gróðurhúsalofttegunda ... og þar með hlýnun jarðar.
↧
Hvatning - Róttæki sumarháskólinn - Innkaupahegðun
Auður Arna Arnardóttir lektor HR: Hvatning og rós geta haft mikið gildi, það getur gjarnan verið lykilatriði fyrir fólk sem reynir að ná árangri; hvort sem er í íþróttum, í vinnu eða uppeldi. En það er ekki sama hvernig hvatningunni er beitt og hún virkar ekki alltaf. Jón Bragi Pálsson: Róttæki sumarháskólinn hefur haldið námskeið hér síðan 2011 og stendur yfir þessa vikuna. En fyrir hvað stendur hann og hvað fer fram í honum? Um það er rætt við einn af aðstandendum skólans. Í þáttarlok er sagt frá rannsóknum á því hvaða áhrif farsímanotkun í matvörumörkuðum hefur á innkaupahegðun fólks.
↧
Rannsókn á plastmengun, rafrænar kosningar og umhverfismál
Katrín Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnun: Rannsóknir á plastmengun á Íslandi, þær fyrstu sinnar tegundar, í fýl og krækling Sigurður Másson, deildarstjóri hjá Advandia: Rafrænar kosningar, reynsla, gengi og framtíð Stefán Gíslason: Umhverfismál, pistill
↧
↧
Raungreinakennsla - Húsflutningar - Leðurblökur
Hólmfríður Sigþórsdóttir form. Samlífs: Samtök líffræðikennara sendu nýlega frá sér ályktun þar sem bent er á, að á sama tíma og kennsla í raungreinum á framhaldsskólastigi hefur dregist saman, þá hefur kennslustundum í efstu bekkjum grunnskóla í raungreinum fækkað. Hjalti Sigmundsson byggingatæknifræðingur: Hús eru flutt af öllum stærðum. Hjalti fer yfir ferlið. Vera Illugadóttir : Hér segir af einmana leðurblökukarli, einum sinnar tegundar sem finnst nú í Bretlandi.
↧
Skýstrókar - Jurtalækningabók - Vísindaspjall
Elín Jónasdóttir veðurfræðingur: Rætt við hana í tilefni þess að skýstrókar riðu yfir bæ á Suðurlandi um sl. helgi. Elín ræðir skýstróka, eðli þeirra og hegðun Sigmundur Guðbjarnason og Margrét Þorvaldsdóttir: Heilnæmi jurta og hollusta matar er heiti bókar sem þau hjón hafa sent frá sér. Þar er farið yfir sögu jurtalækninga og nútímarannsóknir á jurtum. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli dagsins er fjallað um nýbirta rannsókn um áfengi. Edda ræðir aðferðafræðina og fleira í rannsóknarumgerðinni.
↧
Losun - Ferðamál - Byssueign
Margrét Helga Guðmundsdóttir UST: Í nýju uppgjöri staðbundins iðnaðar og flugrekenda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir kemur í ljós að losun gróðurhúsalofttegunda í flugi jókst um 13 prósent milli 2016 og 2017. Margrét fer yfir þróunina. Edward Huijbens prófessor HA: Ræðir um ferðamál á Íslandi, stöðu þeirra í dag og nauðsynlega þróun framundan. Friðrik Páll: Byssueign Bandaríkjamanna er gríðarleg, meira en 300 milljón byssur eru þar í umferð. Skólar eru smám saman að breytast í virki, og ekki eru allir sáttir við þá þróun.
↧
Kennarar - Kjarnaskógur - Klassíkin
Helga Dögg Sverrisdóttir grunnskólakennaeri Akureyri: Helga birti grein í Vikudegi þar sem hún sendi starfsfélögum sínum ábendingar um hvernig þeir geti passað uppá að vinnan rúmist innan vinnutíma. Grunnskólakennari sem vinni í mörg ár umfram lögboðinn vinnutíma brenni út. Pétur Halldórsson kynningarfulltrúi Skógræktar ríkisins: Gengið með honum um Kjarnaskóg við Akureyri og fræðst um uppbyggingu á svæðinu og nytsemi skógarins. Guðni Tómasson og Halla Oddný Magnúsdóttir: Þau segja frá Klassíkinni okkar, þar sem hlustendur hafa valið perlur til flutnings á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar nk. föstudag.
↧
↧
Bílastæði, sveppir og vistheimt
Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur Eflu: Rætt um bílastæði, þróun þeirra og framtíð, notkun og tilgang. Gísli Már Gíslason líffræðingur: um sveppi og sveppatínslu Umhverfisspjall: Hafdís Hanna Ægisdóttir: Vistheimt og loftlagsbreytingar, ráðstefna á Íslandi.
↧
Sorg, loðna og loftslagsbreytingar, brúnrottufrítt fylki
Arnar Sveinn Geirsson og Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur og sorgarráðgjafi: Arnar segir frá því hvernig hann tók dauða móður sinnar, þá 11 ára og hvernig hann hefur á síðustu 15 árum unnið úr þeim atburði. Arnar skrifaði nýverið grein þar sem hann greindi frá því að lengi vel hafi hann bælt þær tilfinningar sem fylgdu fráfalli henna, en finni nú hversu mikilvægt það er að leyfa tilfinningum að koma fram og takast á við þær. Björn Birnir prófessor við University of California: Hvað geta loðnugöngur sagt okkur um hitabreytingar sjávar og loftslagsbreytingar? Björn segir frá rannsóknum og rannsóknarlíkönum sem hann og fleiri hafa verið að þróa. Breytingarnar á göngum loðnustofnanna verða notaðar til að reikna hitabreytinguna í Íshafinu. Það getur gefið til kynna hversu hratt hitinn eykst í Norðurhöfum og hversu hratt Grænlandsjökull gæti bráðnað sem mundi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir loftslag á norðurhveli. Vera Illugadóttir: Alberta fylkið í Kanada er brúnrottufrítt og hefur verið áratugum saman. Þetta er einn fárra staða á byggðu bóli sem getur státað af því.
↧
Merkingar árfarvega, menntun, snjallsímabindindi og skordýraát
Einar Pálsson, forstöðumaður þjónustusviðs Vegagerðarinnar: merkingar árfarvega á vegum landsins Ragnheiður Bóasdóttir, sérfræðingur í Menntamálaráðuneytinu: Menntun og fyrirhuguð fundaröð um menntun fyrir alla Þóra Hrund Guðbrandsdóttir: Þóra ætlar að venja sig af snjallsímanum og fara í samfélagsmiðlabann næstu þrjátíu dagana. Rætt var við hana um átakið ástæður þess og áskoranir. Edda Olgudóttir: áhrif skordýraáts á meltingarkerfið
↧