Ingólfur Bjarni fjallar um um Íran og kjarnorkuviðræður - Rætt við Maríu Björk Einarsdóttur um Almenna leigufélagið - Elva Rakel Jónsdóttir hjá Umhverfisstofnun og Hulda Steingrímsdóttir hjá Alta segja frá verkefninu Græn skref í ríkisrekstri - Rætt við Daða Kolbeinsson einn aðfluttra Íslendinga.
↧
Íran - Leigufélag - Græn skref - Aðfluttur Íslendingur
↧
Eldsneytisverð, fólk utan vinnumarkaðar, Landspítalinn, kaupæði
Rætt við Runólf Ólafsson hjá FÍB um eldsneytisverð, fjallað um velferðarkerfið og fólk utan vinnumarkaðar í samtali við Guðnýju Björk Eydal, rætt við Friðbjörn Sigurðsson yfirlækni á landspítalanum um vanda heilbrigðiskerfisins, og Stefán Gíslason fjallar um sóun og kaupæði daginn eftir Þakkargjörðadaginn í Bandaríkjunum.
↧
↧
Flugfargjöld - Aðstoðarmenn - Mófuglar - Jón Björnsson
Rætt við Heiðrúnu Eriku Guðmundsdóttur hjá Hagstofu um áhrif flugfargjalda á vísitölu - Rætt við Gest Pál Reynisson um hlutverk og stöðu aðstoðarmanna íslenskra ráðherra - Talað við Guðmund A Guðmundsson dýravistfræðing um stöðu mófuglastofna - Pistill Jóns Björnssonar.
↧
Asbest, fátækt, innréttingar, egg
Rætt við Jóhannes Helgason hjá Vinnueftirlitinu um asbest í húsum, reglur um niðurrif og förgun og eftirlit. Rætt við Ástu Dís Guðjónsdóttur formann Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu um lífskjör öryrkja. Athugað hvað verður um gömlu innréttingarnar úr gömlu Fatabúðinni á Skólavörðustíg. Og Stefán Gíslason ræðir hvort yfirskriftin vistvæn egg hafi eitthvert gildi.
↧
Húsmæðraorlof - Sprengisandur - Kvennalán - Olía
Rætt um húsmæðraorlof við Svanhvíti Jónsdóttur frá orlofsnefnd húsmæðra - Talað við Guðmund Inga Guðbrandsson framkvæmdastjóra Landverndar um sameiginlegar athugasemdir nokkurra félaga við áætlanir um háspennulínu og uppbyggðan veg á Sprengisandi - Elín Gróa Karlsdóttir hjá Byggðastofnun segir frá nýjum lánflokki stofnunarinnar til stuðnings fyrirtækjarekstri kvenna - Friðrik Páll fjallar um verðstríð á olíumörkuðum.
↧
↧
Gamlar innréttingar, svæðisskipulag, geimferðir, aðfluttur Íslendingur
Rætt um gamlar innréttingar og varðveislu þeirra við Pétur Ármannsson hjá Minjastofnun. Sagt frá verðlaunum sem Snæfellingar hlutu fyrir svæðisskipulag. Rætt um mannaðar geimferðir og geimferðamennsku, og talað við aðfluttan Íslending, Leone Tinganelli tónlistarmann frá Napoli á Ítalíu.
↧
Óveðurstryggingar - Umferð - Viðgerðir - Tyggjóklessur
Rætt við Agnar Óskarsson og Sigrúnu A Þorsteinssdóttur hjá VÍS um tryggingar og tjón vegna óveðurs - Rýnt í nýjustu tölur um vaxandi umferð á vegum landsins með Friðleifi Inga Brynjarssyni hjá Vegagerðinni - Farið í heimsókn á raftækjaverkstæðið Rafbreidd og rætt við Ágúst kristjánsson um viðgerðir ? Stefán Gíslason segir frá kostnaði í Bretlandi við að fjarlægja tyggjólklessur
↧
Þingvellir og náttúrupassi, Skagfirðingar, Nasa, Jón Björnsson
Rætt við Guðmund Hálfdánarson sagnfræðiprófessor í tilefni frétta um að Íslendingar muni þurfa náttúrupassa til að fara á Þingvelli. Áfram verður fjallað um húsafriðunarmál, skoðað hvaða áhrif friðun Nasa-salarins hefur á byggingarhugmyndir á svæðinu. Sagt frá sjöunda bindi Byggðasögu Skagfirðinga, og Jón Björnsson talar um merka norræna drottningu í pistli sínum.
↧
Efnavara - Óveðurstjón - Hjólreiðar - Græn jól
Rætt við Bergþóru Hlíðkvist hjá Umhverfisstofnun um þekkingu iðnaðar og verslunar á ábyrgð þeirra sem markaðssetja efnavöru - Talað við Sesselju Traustadóttur hjá Hjólafærni um vetrarhjólreiðar - Rætt við Sunnu Hrönn Sigmarsdóttur fasteignastjóra Hörpu um það hvort tjón hafi orðið á Hörpu í óveðrinu um þarsíðustu helgi - Stefán Gíslason fjallar um það hvernig hægt er að láta fara saman, vellíðan á jólaföstunni og umhverfislegan ábata
↧
↧
Kynjakvótar, hálsvandamál, umhverfisgrín, ólesinn ráðherra
Rætt við Auði Örnu Arnardóttur og Þröst Olaf Sigurjónsson hjá HR um rannsókn þeirra á árangri af kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Rætt við Guðnýju Lilju Oddsdóttur um Fluguna, greiningartæki til að meta skerðingu á stjórn hálshreyfinga. Fjallað um myndbönd þar sem vakin er athygli á umhverfismálum á gamansaman hátt. Friðrik Páll Jónsson segir af vangaveltum um hvort menningarmálaráðherra Frakka eigi að segja af sér þar sem hann hefur ekkert lesið eftir franskan Nóbelsverðlaunahafa.
↧
Pyntingar - Bréfamaraþon - Rauði Krossinn - Aðfluttur Íslendingur
Ingólfur Bjarni fjallar um nýja skýrslu um pyntingar Bandarísku leyniþjónustunnar - Bryndís Bjarnadóttir segir frá samkeppni framhaldsskóla í Bréfamaraþoni Amnesty International - Rætt við Helgu G Halldórsdóttur í tilefni af 90 ára afmæli Rauða krossins á Íslandi - Rifjað upp viðtal Alberto Borges Moreno er íþróttafræðingur af kúbönskum uppruna
↧
Ójöfnuður, skilareglur, snjómokstur, Snæfellsnes
Rætt við Stefán Ólafsson prófessor um nýja skýrslu OECD, fjallað um skilareglur í verslunum í tengslum við gjafakaup, fræðst um snjómokstur í Reykjavík - rætt við Þröst Ingólf Víðisson yfirverkstjóra á Umhverfissviði Reykjavíkurborgar og Stefán Gíslason segir af vali Snæfellsness á lista yfir 100 sjálfbærustu áfangastaði í heimi.
↧
Vaxtamunur - Ramagerðin - Þvottalaugar - Jón Björnsson
Rætt við Viðar Ingason hagfræðing VR um vaxtamun banka - Farið í heimsókn í Rammagerðina og rætt við Lovísu Óladóttur framkvæmdastjóra - Rætt við Kristínu Steinsdóttur um þvottalaugarnar - Pistill Jóns Björnssonar
↧
↧
Hálkuvarnir, rafmagnsmál Vestfjarða, jólasteikin, loftslagsráðstefna
Fjallað um hálkuvarnir á vegum, salt, sandur eða aðrar leiðir. Rætt við Kristján Haraldsson Orkubússtjóra Orkubús Vestfjarða um dreifikerfi raforku á Vestfjörðum en þar er straumleysi hvað tíðast á landinu. Rætt um jólasteikina við Sigurður Örn Hansson frá Matvælastofnun, hvað sé í boði um þessar mundir. Og Stefán Gíslason segir af loftslagsráðstefnunni í Lima.
↧
J'olatré - Leiðréttingin - Lambhagi - Sonyinnbrot
Rætt við Helga Þórsson skógarbónda í Kristnesi Eyjafirði um jólatré og ræktun þeirra - Rætt við Tryggva Þór Herbertsson verkefnisstjóra höfuðstólslækkunarinnar um stöðuna í leiðréttingaferlinu - Talað við Hafberg Þórisson í Lambhaga þar sem stunduð er ein mesta blaðsalatræktun landsins í hátæknigróðurhúsum - Friðrik Páll fjallar um tölvuinnrásina í Sony-kvikmyndaverið í Hollywood
↧
Heilbrigðiskerfið, mannfjöldaspá, jólasiðir
Rætt við Sighvat Björgvinsson, fyrrum heilbrigðisráðherra, um stöðuna í heilbrigðiskerfinu, talað við Ólöfu Garðarsdóttur prófessor í sagnfræði um nýja mannfjöldaspá, og fjallað um jólasiði heima og heiman.
↧
Verðmerkingar - Tölfur - Bækur - Rafvæddar samgöngur
Rætt við Þórunni Önnu Árnadóttur sviðsstjóra hjá Neytendastofu um neytendarétt, verðmerkingar, sektir og fleira - Í tilefni af 50 ára afmæli Reiknistofnunnar Háskóla Íslands verður rætt við Albert Jakobsson sérfræðing Reiknistofnun - Rætt við Kristjönu Birgisdóttur Verkefnastjóra hjá verðlagseftirliti ASÍ um bókaverð - Stefán Gíslason fjallar um rafvæðingu samgangna og frumlegar hugmyndir sem hafa orðið að veruleika
↧
↧
Landmannalaugar - Aðgengi - Framköllun - Jólamatarsóun
Rætt við Aðalheiði E Kristjánsdóttur hjá Landmótun um vinningstillögu um Landmannalaugar - Rætt við Ástu Dís Guðjónsdóttur og Bergþór Þorra Benjamínsson um aðgengi fatlaðra - Heimsókn í framköllunarstofuna Pixla - Stefán Gíoslason fjallar um jólamatarsóun.
↧
Veður - Sveitarfélög - Ferðamenn - Flugeldar
Rætt við Trausta Jónsson veðurfræðing um veðurfarið 2014 - Rætt við Halldór Halldórsson formann Sambands ísl. sveitarfélaga um útgjöld í bótakerfinu og úrsvarsmál - Rætt við Sigrúnu Nikulásdóttur hjá New Moments um ferðaþjónustuna - Stefán Gíslason fjallar um flugelda og umhverfismál
↧
Horft um öxl- samfélagið 2014
Í þessum síðasta þætti ársins er horft um öxl, sjónum beint að ýmsu því sem borið hefur við á sviði samfélagsmála á árinu, í samtali við gesti þáttarins. Þeir eru:
-Vilhjálmur Árnason prófessor í heimspeki og stjórnarformaður Siðfræðistofnunar.
-Maríanna Traustadóttir mannfræðingur, sem starfar í félagsmáladeild Alþýðusambands Íslands
-Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur
↧