Rætt við Einar Á.E. Sæmundsen fræðslufulltrúa þjóðgarðsins á Þingvöllum um stjórnun ferðaþjónustu þar - Litið inn á bílaverkstæði og talað við Stefaníu Gunnarsdóttur bifvélavirkja - Rætt við Ester Rut Unnsteinsdóttur spendýravistfræðing Náttúrufræðistofnunnar um fækkun í íslenska refastofninum - Friðrik Páll fjallar um Ben Bradlee sem lést í síðustu viku en hann var ritstjóri Washington Post þegar Watergatemálið kom upp
↧
Þjóðgarðar - Bifvélavirki - Refir - Ben Bradlee
↧
Norðurslóðir - Kvikmyndagerð - Hjúkrunarþjónusta fyrir aldraða - Aðfluttur ´
Rætt við Margréti Cela verkefnisstjóra Rannsóknarseturs um norðurslóðir en tvær alþjóðlegar ráðstefnur um norðurslóðir eru haldnar í þessari viku í Reykjavík - Talað við Þór Ómar Jónsson um kvikmyndagerð á Íslandi - Rætt við Ingibjörgu Hjaltadóttur sérfræðing í öldrunarhjúkrun um stöðu og framtíðarsýn í hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða í heimahúsum og á hjúkrunarheimilum - Talað við einn af okkar aðfluttu Íslendingum, Deryu Özdilek, sem á ættir að rekja til Tyrklands.
↧
↧
Utanvegaakstur - Hrekkjavaka - Noræna sambandsríkið - Loftslagsmál
Rætt við Andrés Arnalds hjá Landgræðslunni og Guðmundur Ingi Guðbrandsson hjá Landvernd um ferðamenn í utanvegaakstri - Fjallað um Hrekkjavöku -Rætt við Jón Yngva Jóhannsson um fyrri tíma hugmyndir um norrænt sambandsríki - Stefán Gíslason fjallar um spurninguna hvort stefnubreyting í loftslagsmálum verði þegar til kemur drifin áfram af fjárfestum en ekki ríkisstjórnum.
↧
Þjóðarspegill 2014 - rannsóknir í félagsvísindum
Rætt við Karen Möller Sívertsen meistaranema um norðurljósin í markaðsfærlsu á Fésbók - Snorri Örn Árnason félagsfræðingur segir frá greiningum á þolendakönnunum og afbrotafræði lögreglunnar - Rætt við Friðrik Þór Guðmundsson blaðamann um siðferðilegan sveigjanleika íslenskra fréttamanna - Hervör Alma Árnadóttir ræðir um þátttöku barna og ungmenna í ákvrðanatökuferli ionnan velferðarkerfisisns.
↧
Umhverfisverðlaun - Lögheimili - Upplýsingaöryggi - Loftslagsskýrsla
Rætt við Ólöfu Örvarsdóttur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur en Reykjavíkurborg hlaut Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2014
Ástríður Jóhannesdóttir deildarsstj. Lögfræðisviðs þjóðskrársviðs Þjóðskrárinnar um lögheimili hjóna.
Rætt við Marínó G Njálsson tölvunarfræðing um upplýsingaöryggi
Stefán Gíslason fjallar um nýútkomna skýrslu loftslagsnenfdar Sameinuðu þjóðanna.
↧
↧
Jafnrétti framhaldsskólanema, herskip, intersex, Palestína
Sagt frá rannsókn á stöðu jafnréttismála í félagslífi framhaldsskólanema, rætt við Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur og Rakel Magnúsdóttur. Talað við Bjarna Má Magnússon sérfræðing í þjóðarrétti um stöðu herskipa í landhelginni. Rætt við Kitty Andersen um málefni intersexfólks. Og Friðrik Páll Jónsson talar um hugsanleg áhrif þess að sænska stjórnin hefur viðurkennt ríki Palestínumanna.
↧
norðurslóðir - arkitektúr - Styrkjamál - Aðfluttur íslendingur
Ingólfur Bjarni fjallar um Norðurslóðamál og stefnu Íslands -Rætt við Ágúst H. Ingþórsson, sviðstjóra hjá Rannís um styrki sem standa íslendingum til boða í evrópsku og norrænu samstarfi - Talað við Sigríði Ólafsdóttur formann Arkitektafélags íslands um bækur um arkitektúr - Einn af okkar aðfluttu Íslendingunum, Edvardas Paskevicius frá Litháen, segir okkur sögu sína
↧
Starfsánægja eftir hrun, markaðslæsi, sagnfræði hrunsins, Svanurinn
Rætt við Hjördísi Sigursteinsdóttur um rannsókn á starfsánægju og hollustu á vinnustað í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Sagt frá námskeiði um hrunið í Háskóla Íslands. Rætt við Halldóru Björnsdóttur um markaðslæsi og drög að námsefni fyrir fjölskyldur um þau mál sem hún hefur hannað. Stefán Gíslason flytur afmælispistil um umhverfismerkið Svaninn en 25 ár eru liðin í dag frá því það var tekið í notkun.
↧
Heimilisskipti - Hljóðbækur - Brottflutningur - Jón Björnsson
Rætt við Ósk Vilhjálmssóttur um heimilisskipti fjölskyldna og unglingaskipti - Rætt við Stefán Hjörleifsson hjá Skynjun um útgáfu hljóðbóka og rafbóka - Rifjaðar upp frásagnir af brottflutningi íslendinga fyrr á árum - Jón Björnsson heldur áfram að segja sögur af Asnamönnum.
↧
↧
Miðhálendið, Sorpa, súrnun sjávar, Sellafield
Fjallað um hugmyndir um vegalagningu og raflínur á Sprengisandsleið, rætt við tvo starfsmenn Sorpu í Álsnesi um ýmislegt óvenjulegt sem menn koma með á endurvinnslustöðvar. Rætt við rætt við Hrönn Egilsdóttur doktorsnema, sem hlaut hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi fyrir rannsóknir sínar á áhrifum súrnunar sjávar. Stefán Gíslason fjallar um kjarnorkuúrvinnslustöðina Sellafield á Englandi.
↧
Alþjóðasamskipti, rafbílar, lungnasjúklingar, aðfluttur Íslendinga
Rætt um samskipti Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna sem hafa verið stirðari undanfarið en oftast áður. Talað við Hlyn Stefánsson dósent við HR um útreikning á þjóðhagslegum ávinningi af rafbílavæðingu Íslands. Sagt frá dagskrá á vegum Samtaka lungnasjúklinga, rætt við Birgi Rögnvaldsson. Rætt við aðfluttan Íslending, Karl Petersson frá Svíþjóð.
↧
Eldri starfsmenn - Dýrin - Málþing - Matvöruflutningar
Rætt við Jónu Valborgu Árnadóttur sem rannsakað hefur viðhorf og starfsánægju eldri starfsmanna - Margrét Björk Sigurðardóttir dýraatferlisfræðingur segir frá rannsóknum á áhrifum návistar dýra á heilsu manna - Talað við Ernu Indriðadóttur um Margréti Indriðadóttur sem var fréttastjóri Ríkisútvarpsins um árabil - Stefán Gíslason fjallar um norska könnun sem sýnir að flutningur matvöru skiptir ekki öllu máli þegar kemur að mati á umhverfisáhrifum.
↧
Vetrarakstur, málræktarþing, farfuglaheimili, asnamenn
Rætt við Auði Þóru Árnadóttur og Katrínu Halldórsdóttur hjá Vegagerðinni um athugun á öryggi erlendra ferðamanna að vetrarlagi. Sagt frá Málræktarþingi og rætt við Harald Bernharðsson varaformann Íslenskrar málnefndar. Farið í heimsókn á farfuglaheimili, og Jón Björnsson heldur áfram að tala um asnamenn.
↧
↧
Plastpokalaust land, leigjendur, bókavika á Hólmavik, hormóna
Rúanda hefur verið plastpokalaust land í allmörg ár, rætt við Sólrúnu Engilbertsdóttur sem vinnur þar fyrir Unicef. Sagt frá bókaviku á Hólmavík sem krakkarnir á staðnum eiga frumkvæði að. Rætt við Hólmstein Brekkan, framkvæmdastjóra Samtaka leigjenda á íslandi um leigjendur og leiðréttinguna. Og Stefán Gíslason segir frá niðurstöðum athugunar á kostnaði vegna hormónaraskandi efna.
↧
Jafnréttisþing, bókamarkaðurinn, pólitískt traust, innflytjendur
Rætt við Maríönnu Traustadóttur um jafnréttisþing og jafnlaunastuðul, við Dögg Hjaltalín um hvers virði íslenski bókamarkaðurinn er, Sjöfn Vilhelmsdóttir segir frá doktorsverkefni sínu sem snýst um pólitískt traust, og Friðrik Páll Jónsson fjallar um innflytjendur sem fara yfir Miðjarðarhafið frá Afríku til Evrópu.
↧
Losunarsamkomulag, tónlistarskólar, gull, aðfluttur Íslendingu
Fjallað um samkomulag Bandaríkjamanna og Kínverja um aðgerðir sem miða að því að draga úr hlýnun jarðar. Rætt um verkfall tónlistarkennara og deilur um fjármögnun tónlistarskóla við Þórunni Guðmundsdóttur aðstoðarskólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík. Rætt um möguleika á gullvinnslu á Íslandi við Hjalta Franzson jarðfræðing. Og rætt við aðfluttan Íslending Raphel Cao Romero Millan, arkítekt frá Mexíkó.
↧
Leiðréttingin, hópmálsókn, prófkvíði, Tsjernóbíl
Rætt verður við Jón Ólafsson heimspeking um leiðréttinguna út frá hugmyndum um sanngirni og réttlæti. Talað við Ásu Ólafsdóttur hjá lagadeild Háskóla Íslands um hópmálssókn, við námsráðgjafa hjá HÍ um prófkvíða. Stefán Gíslason ræðir um stöðu mála í Tsjernóbíl, tæpum 30 árum eftir sprengingu í kjarnaofni þar.
↧
↧
Ferðaþjónusta, flóttamenn, bréfamaraþon, asnamenn
Rætt við Sigurveigu Jónsdóttur, annan höfund sögu ferðaþjónustu á Íslandi, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir segir frá ráðstefnu um málefni flóttamanna, rætt við Bryndísi Bjarnadóttur um væntanlegt bréfamaraþon Amnesty, og Jón Björnsson heldur áfram að tala um asnamenn.
↧
Bárðarbunga - Borgaralegt öryggi - Svartihnjúkur - Stafræn bylting
Rætt við Ara Trausta Guðmundsson jarðvísindamann um kenningar um umbrotin í Bárðarbungu - Rætt við Hjálmtý Heiðdal um bakgrunn heimildamyndarinnar Svartihnjúkur - Rætt við Alyson Bailes um norrænt samvinnuverkefni sem snýr að borgaralegu öryggi - Stefán Gíslason fjallar um umhverfislegan ábata stafrænu byltingarinnar
↧
Ungmenni, markaðssetning jóla, Ástusjóður, Mexíkó
Sagt frá ráðstefnu um íslenskar æskulýðsrannsóknir, rætt um jólamarkaðssetningu við Vilborgu Oddsdóttur hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, rætt við Ástbjörgu Rut Jónsdóttur stjórnarmanni í Ástusjóði um tónleika til styrktar Björgunarsveitunum, og Friðrik Páll Jónsson ræðir um ástandið í Mexíkó.
↧